Þorgerður og Hanna Katrín í sóttkví

Hanna Katrín Friðriksson.
Hanna Katrín Friðriksson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hanna Katrín Friðriksson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmenn Viðreisnar, eru komnar í sóttkví. Frá þessu greina þær báðar á Facebook.

Hanna Katrín og eiginkona hennar, Ragnhildur Sverrisdóttir eru báðar einkennalausar og hressar, að því er kemur fram á Facebook-síðu Hönnu Katrínar. Þar segist hún ætla að taka þátt í nefndarfundum Alþingis í gegnum fjarfundarbúnað og þannig geti hún hún haldið áfram að leggja sitt af mörkum.

Þorgerður er í sóttkví ásamt fjölskyldu sinni og greinir jafnframt frá því að móðir hennar, 93 ára, sé einnig í sóttkví. „Þetta er fúlasta alvara. Pössum upp á fólkið okkar, elsku vinir og gerum þetta rétt.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

 Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert