Halla nýr framkvæmdastjóri ASÍ

Halla Gunnarsdóttir.
Halla Gunnarsdóttir.

Halla Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands. Halla er menntuð sem kennari frá Kennaraháskóla Íslands og er með MA-próf í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum frá árinu 2018. Áður starfaði hún sem skrifstofustjóri Women‘s Equality Party í Bretlandi, ráðgjafi á alþjóðlegri lögmannsstofu, aðstoðarmaður ráðherra hér á landi og blaðamaður á Morgunblaðinu.

Halla hefur víðtæka reynslu af stefnumörkun og stjórnun verkefna. Hún hefur leitt stefnumótandi nefndir á vegum stjórnvalda, meðal annars sem tengjast baráttu gegn ofbeldi og málefnum útlendinga. Hún hefur skipulagt alþjóðlegar ráðstefnur, skrifað ritrýndar fræðigreinar og fræðibók, auk þess sem hún ritaði ævisögu Guðrúnar Ögmundsdóttur og hefur gefið út tvær ljóðabækur. Halla hefur jafnframt tekið virkan þátt í félagsstörfum, bæði hérlendis og erlendis.

Fram kemur, að Halla verði viðbót í úrvalsstarfshóp Alþýðusambandsins, en verkefni hennar muni snúa að samskiptum við aðildarfélög sambandsins, stefnumótun, daglegum rekstri og starfsemi skrifstofu ASÍ auk þess að leiða faglega vinnu samtakanna.

Halla hefur störf 15. apríl næstkomandi og tekur við af Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra undanfarin fimm ár. Þá segir, að Guðrúnu séu færðar bestu þakkir fyrir gott og gjöfult samstarf og óskað velfarnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert