Heitavatnslaust í Vesturbænum fram á morgun

Heitavatnslaust er á þessu svæði.
Heitavatnslaust er á þessu svæði. Ljósmynd/Veitur

í ljós hef­ur komið að skemmd­ir á stofn­lögn hita­veitu er gera á við í kvöld og nótt reynd­ust um­fangs­meiri en ætlað var. Vegna þessa er ekki hægt að veita heitu vatni til íbúa um aðrar leiðir eins og Veit­ur greindu frá fyrr í kvöld og því verður heita­vatns­laust leng­ur en sagt var, eða þar til í fyrra­málið.

Á vefsíðu Veitna kem­ur fram að heitt vatn verði aft­ur í vest­ur­hluta Reykja­vík­ur klukk­an níu í fyrra­málið.

Eins og kom fram fyrr í kvöld fór lögn í sund­ur við viðgerð á stof­næð við Vals­heim­ilið og er heita­vatns­laust í vest­ur­hluta Reykja­vík­ur.

Talið var að um þrjár klukku­stund­ir tæki að ná upp full­um þrýst­ingi í kerf­inu en ljóst er að það tek­ur tölu­vert lengri tíma.

Frá viðgerð við stofnæðar í desember.
Frá viðgerð við stof­næðar í des­em­ber. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyr­ir alla heita­vatns­krana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatn kem­ur á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og úti­dyr ekki opn­ar leng­ur en þörf kref­ur til að koma í veg fyr­ir að það kólni.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka