Alls hafa 890 greinst með kórónuveiruna hérlendis. Þetta er fjölgun um 88 á einum sólarhring sem er meiri fjölgun en í gær þegar greindum einstaklingum fjölgaði um 65.
806 eru í einangrun og 17 liggja á sjúkrahúsi, samkvæmt tölum á Covid.is.
Alls hafa 82 jafnað sig á sjúkdómnum.
10.009 manns eru í sóttkví og 3.209 hafa lokið sóttkví. 13.613 sýni hafa verið tekin.
620 manns hafa smitast á höfuðborgarsvæðinu, 92 á Suðurlandi, 37 á Suðurnesjum, 17 á Norðurlandi vestra, 13 á Norðurlandi eystra, 10 á Vesturlandi, 3 á Austurlandi og 1 á Vestfjörðum. 9 smit eru óstaðsett.
Alls eru 5.113 í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu og 1.181 á Suðurlandi, svo dæmi séu tekin.