„Það er ekkert annað í spilunum nú en að fyrstu aðgerðir hefjist eftir 4. maí.“ Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaðamannafundi almannavarna spurður út í það hvernig samkomubanni og öðrum takmörkunum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar verður aflétt. Ekki komi til greina að slaka á aðgerðum fyrir þann tíma.
Líkt og fram hefur komið, verður banninu aflétt í nokkrum áföngum og verður það gert í öfugri röð miðað við hvernig bannið var sett á. Verða þá sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, hárgreiðslustofur og fleiri fyrirtæki opnuð, og væntanlega slakað á fjöldatakmörkunum á samkomum.
Í yfirlýsingu frá Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá í gær kom fram að stofnunin teldi ekki tímabært að huga að tilslökunum aðgerða vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins, þrátt fyrir að jákvæð teikn séu á lofti víða í álfunni.