Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma D. Möller landlæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Gestir fundarins verða Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.