Flugáætlun Icelandair næstu þrjár vikur

Alls er um að ræða átta ferðir til London, sjö …
Alls er um að ræða átta ferðir til London, sjö ferðir til Boston og þrjár ferðir til Stokkhólms. mbl.is/Sigurður Bogi

Icelandair gaf í gærkvöldi út flugáætlun sína til og frá Íslandi næstu þrjár vikur en flugfélagið flýgur til og frá London, Boston og Stokkhólmi. Frá þessu er greint á facebooksíðu utanríkisráðuneytisins.

Alls er um að ræða átta ferðir til London, sjö ferðir til Boston og þrjár ferðir til Stokkhólms. 

Flogið verður til og frá London 14., 19., 22., 24., 26., 29. apríl og 1. og 3. maí. 

Til og frá Boston 15., 16., 18., 23., 25., 30. apríl og 2. maí.

Til og frá Stokkhólmi næstu þrjá laugardaga; 18. og 25. apríl og 2. maí.

Engar aðrar flugferðir eru á áætlun Icelandair næstu þrjár vikurnar.

Fram kemur í athugasemd við facebookfærslu utanríkisráðuneytisins að engin plön séu um flug til og frá Kaupmannahöfn. Einu ferðirnar til og frá Norðurlöndunum verða frá Stokkhólmi á tímabilinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert