Jarðskjálfti, 3,2 að stærð, varð í Bárðarbungu klukkan hálfþrjú í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hafa nokkrir minni eftirskjálftar mælst í kjölfarið en engin merki eru um gosóróa.
Upptök skjálftans voru í sunnanverðri Bárðarbunguöskjunni.