Nauðlentu í Eyjafirði

map.is
map.is map.is

Nauðlenda þurfti einkaflugvél rétt norðan við bæinn Dagverðareyri í Eyjafirði á sjöunda tímanum í gær vegna bilunar í mótor vélarinnar. Tveir voru um borð í vélinni en þá sakaði ekki að sögn varðstjóra í lögreglunni á Norðurlandi eystra. Flugmaðurinn lenti vélinni án áfalla að sögn varðstjórans. 

Fréttin hefur verið uppfærð þar sem staðsetningin var ekki rétt í byrjun. Beðist er velvirðingar á þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert