Réðust á unga konu

mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilkynnt var um líkamsárás í Kópavogi laust fyrir hádegi í dag þar sem maður og kona réðust á unga konu utandyra og veittu henni áverka. 

Fram kemur í dagbók lögreglu að árásarþola hafi verið ekið á slysadeild og er málið í rannsókn.

Þá kom húsráðandi í Bústaðahverfi í Reykjavík á fjórða tímanum þar sem maður var að reyna að brjótast inn í húsið hans.

Gerandinn reyndi að komast undan á hlaupum var handtekinn en hann hafði öxi meðferðis í bakpoka. Maðurinn var vistaður í fangageymslu en hann var einnig eftirlýstur vegna annarra brota.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert