Að meðaltali dóu 45,9 á viku fyrstu fimmtán vikur áranna 2017-2019. Fyrstu fimmtán vikur ársins 2020 dóu aðeins færri eða 44,3 að meðaltali á hverri viku.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands
Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 85 ára og eldri yfir tímabil 2017-2019 en það var einnig algengasti aldursflokkur þeirra sem dóu fyrstu fimmtán vikur ársins 2020. Tíðasti aldur látinna fyrstu fimmtán mánuði 2020 var 83 ára en 87 ára fyrir sömu mánuði áranna 2017-2019.