Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði fram tillögur á ráðherrafundi um ríkisfjármál í apríl um að ráðast í framkvæmdir í Helguvíkurhöfn á vegum Atlantshafsbandalagsins. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og varaforseti utanríkismálanefndar, segir „dapurlegt að samstarfsflokkurinn sé að leggja svona tillögur fram“.
Þær eru að hennar mati ekki leiðin til þess að koma atvinnulífi á Suðurnesjum af stað. Þegar sé fyrirhuguð mikil hernaðaruppbygging á Suðurnesjum og ekki eigi að bæta við hana með aðgerðum sem þessum.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í morgun að uppbyggingartillagan hafi mætt mótstöðu Vinstri grænna. Rósa segist ekki þekkja í hverju sú mótstaða fólst, enda hafi málið aldrei formlega verið rætt, en fagnar henni engu síður. „Ég er ánægð að sjá það, ef rétt reynist, að ráðherrar Vinstri grænna í ríkisstjórn hafi staðið í lappirnar og lýst sig andsnúin þessum fyrirætlunum,” segir hún.
Hún bætir við að málið hefði þó hvort sem er þurft þinglega meðferð til þess að af því hefði orðið.
Rósa ítrekar sjónarmið sem hún lýsti í samtalið við Morgunblaðið í liðnum mánuði: „„Mér finnst sérstakt að kjörnir fulltrúar á Suðurnesjum séu að leita til NATO vegna uppbyggingar á innviðum. Eins og við vitum eru uppbygging og viðhald á vegum Atlantshafsbandalagsins þegar umdeild mál, þannig að ef við værum að fara í hernaðartengda uppbyggingu á hafnarsvæðum væri það eitthvað sem þyrfti mun ítarlegri umræðu við, enda um þjóðaröryggismál að ræða.“