Líkamsárás og hótanir í Kópavogi

mbl.is/Eggert

Tilkynnt var um líkamsárás og hótanir í hverfi 200 í Kópavogi upp úr klukkan þrjú í dag.

Ekkert meira kemur fram um atvikið í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í samtali við mbl.is sagðist lögreglan í Kópavogi ekki hafa frekari upplýsingar um það sem gerðist.

Á fimmta tímanum í dag var tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 104 í Reykjavík og upp úr klukkan hálfþrjú var tilkynnt um eignarspjöll í hverfi 108.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert