Fyrirhuguð uppbygging húsnæðis fyrir heimilislausa í Gufunesi er utan deiliskipulags, að sögn Ólafs Kr. Guðmundssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Með framkvæmdunum sé þrengt að vegstæði Sundabrautar, en það hafi þegar verið gert með samkomulagi um nýtt hverfi, Þorpið, í Gufunesi.
Borgarstjóri mætir á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag en tilefnið er samkomulag um mögulegt flugvallarstæði í Hvassahrauni. Bergþór Ólason, formaður nefndarinnar, segist þó eiga von á að Sundabraut verði einnig til umræðu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.