Svandís þakkaði WHO

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þakkaði fyrir leiðsögn og forystu WHO og hvatti til samstöðu þjóða þegar hún ávarpaði þing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem nú stendur yfir. Þingið er haldið í skugga heimsfaraldurs COVID-19 sem er meginumfjöllunarefnið og setur jafnframt mark sitt á umgjörð þess þar sem það er haldið á netinu. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. 

Svandís sagði leiðsögn WHO hafa reynst Íslandi vel þar sem kapp hefði verið lagt á greiningu smita, smitrakningu og sóttkví til að hindra útbreiðslu veirunnar. Hún sagði íslenska heilbrigðiskerfið hafa staðist álagið vel þar sem sterk, samhæfð, opinber heilbrigðisþjónusta hefði sýnt aðdáunarverðan sveigjanleika og aðlögunarhæfni. „Margt höfum við lært sem mun gagnast við uppbyggingu og endurskipulagningu heilbrigðiskerfisins fram undan,“ sagði ráðherra meðal annars.

„Áhrif COVID-19 á þjóðir heims eru víðtæk. Nýr veruleiki blasir við. Djúp kreppa, atvinnuleysi og óöryggi setur mark sitt á líf fjölmargra. Við þurfum að fylgjast með áhrifum þessa á líðan fólks og geðheilsu, hlúa að samfélagslegum innviðum og sjá til þess að enginn verði skilinn eftir. Ég nefni hér sérstaklega konur og börn í viðkvæmri stöðu. Ég nefni hér fátækar þjóðir,“ sagði ráðherra og ítrekaði að áframhaldandi samstaða þjóða væri grundvallaratriði í áframhaldandi baráttu við faraldurinn og til að mynda ein meginforsendan fyrir þróun bóluefnis við faraldrinum.

„Við búum í samfélagi þjóða og við eigum okkur sameiginleg markmið. Látum heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna verða vegvísi okkar inn í framtíðina og skiljum engan eftir,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í lok ávarps síns á 73. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert