Á hverjum degi tapast að meðaltali um 1,5 milljarðar króna í gjaldeyristekjum á meðan engir ferðamenn koma til Íslands.
Þetta sagði Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar, á blaðamannafundi vegna kórónuveiru.
Hún sagði að undanfarnir mánuðir hefðu verið ferðaþjónustufyrirtækjum og starfsfólki í ferðaþjónustu bæði erfiðir og mjög óraunverulegir.
Ferðaþjónustan sé sú atvinnugrein sem hafi fengið þyngsta höggið strax og að atvinnuleysistölur hafi ekki sést áður svona háar.
Spurð út í fjölda ferðamanna sem muni koma til landsins það sem eftir lifir af árinu sagðist hún lítið geta sagt. Fjöldinn gæti orðið 50 þúsund eða jafnvel 300 þúsund.