Stefnt er á að yfirleggja 3,2 km langan kafla á Krýsuvíkurvegi í dag. Veginum verður lokað á milli Hafnarfjarðar og Vatnsskarðsnámu á meðan framkvæmd stendur og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdir standi frá 06:00 til kl. 00:00.
Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.