Alþýðusamband Ísland krefst hækkunar atvinnuleysisbóta, meðal annars með því að grunnatvinnuleysisbætur verði hækkaðar um 28.740 krónur og að tekjutengda tímabilið verði lengt.
Í tilkynningu frá sambandinu segir að við þær aðstæður sem nú eru uppi á vinnumarkaði og fyrirsjáanlegar eru á næstu misserum er nauðsynlegt að gera breytingar til að forða fólki sem misst hefur vinnuna frá enn verri áföllum en felast í atvinnumissi og því tekjutapi sem honum fylgir.
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands í apríl gefur skýra mynd af þeirri dæmalausu stöðu sem upp kom á vinnumarkaði í kórónuveirufaraldrinum en í ljós kemur að alls voru 13.700 einstaklingar án vinnu og í atvinnuleit í apríl sem jafngildir 7% atvinnuleysi.
Alþýðusambandið hefur um nokkurra missera skeið lagt áherslu á að lögin um atvinnuleysistryggingar verði endurskoðuð í heild sinni. Alþýðusambandið hefur jafnframt lagt ríka áherslu á að atvinnuleysisbætur verði þegar í stað hækkaðar og tekjutengda tímabilið lengt.
Tillaga Alþýðusambandsins felst í eftirfarandi fjórum þáttum:
Nú eru grunnbætur úr atvinnuleysistryggingasjóði m.v. fullt starf kr. 289.510 á mánuði (auk þess sem greidd er lág fjárhæð með hverju barni á framfæri yngra en 18 ára). Þá eru tekjutengdar bætur að hámarki kr. 456.404 á mánuði, en þó aldrei hærri en 70% af meðaltali heildarlauna á viðmiðunartímabilinu. Tekjutengdar atvinnuleysisbætur eru lengst greiddar í þrjá mánuði, en þó ekki fyrstu tvær vikur í atvinnuleysi.
„Um er að ræða hóflegar breytingar sem eru einfaldar og hægt er að hrinda strax í framkvæmd en með því fororði þó að heildarendurskoðun laganna fari fram og þá verði fjárhæðir atvinnuleysisbóta og annar stuðningur úr atvinnuleysistryggingasjóði tekinn til gagngerrar skoðunar með það að markmiði að forða fólki frá tekjufalli,“ segir í tilkynningu ASÍ.