Engar sterkar vísbendingar um yfirvofandi stórfellt hrun

Flogið var yfir nyrsta hluta Tröllaskaga þar sem áhersla var …
Flogið var yfir nyrsta hluta Tröllaskaga þar sem áhersla var lögð á að kanna þekkt jarðsigssvæði og hlíðar ofan vega og ofan við þéttbýli. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Engar sterkar vísbendingar eru um yfirvofandi stórfellt hrun af völdum jarðskjálftahrinu sem riðið hefur yfir fyrir norðan landið síðan á föstudag.

Starfsmenn frá Veðurstofu Íslands og Náttúrufræðistofnun fóru í vettvangsflug með Landhelgisgæslunni síðdegis í dag, en tilgangur ferðarinnar var meðal annars að kanna óstöðugleika í hlíðum og ummerki um skriðuföll á svæðinu, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Flogið var yfir nyrsta hluta Tröllaskaga þar sem áhersla var lögð á að kanna þekkt jarðsigssvæði og hlíðar ofan vega og ofan við þéttbýli. Eins voru ummerki um hrun í Gjögurfjalli og Hvannadalsbjargi skoðuð sérstaklega, en neðan þeirra mátti sjá myndarlegar skriðudyngjur sem staðfesta að þar urðu skriður.

Niðurstöður ferðarinnar voru jákvæðar með tilliti til skriðufalla þar sem engin ummerki um stórfelldar sprungur var að finna á þessum svæðum og því engar sterkar vísbendingar um yfirvofandi stórfellt hrun af völdum stórra jarðskjálfta. Eins sáust engin ummerki um að stórar fyllur hefðu fallið úr hlíðum. Vegna mikillar óvissu um áframhaldandi þróun jarðskjálftavirkninnar er ekki þó ekki hægt að útiloka slíka atburði í framtíðinni. Á þeim stöðum þar sem auðvelt var að greina ummerki um skriður eða grjóthrun var yfirleitt um svæði að ræða þar sem mikið er jafnan af lausaefnum, hlíðar brattar og skriður þar algengar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert