Þingfundi lauk á öðrum tímanum í nótt og hafði þá staðið frá því klukkan 11 um morguninn eða í tæpar 13 klukkustundir. Líkt og síðustu daga voru þingmenn Miðflokksins mestmegnis á mælendaskrá og ræddu fimm og fimmtán ára samgönguáætlanir.
Við lok fundarins var umræðum um samgönguáætlanir frestað en önnur mál tekin af dagskrá. Líkt og forseti Alþingis tilkynnti í gær hefur starfsáætlun Alþingis hefur verið tekin úr sambandi.
Ný áætlun hefur ekki lögð fram en ætla má að ekki takist að ljúka þingi líkt og stefnt var að nú á fimmtudag.
Þingfundur hefst að nýju klukkan 11:30. Í kvöld verða eldhúsdagsumræður á þingi, sem alla jafna marka þinglok, en þingfundir eru á dagskrá á miðvikudag og fimmtudag.