Fjórir þingmenn í utanríkismálanefnd hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum sínum af áætlun nýrrar ríkisstjórnar Ísraels um innlimun á svæðum Palestínumanna. Er hún hluti alþjóðlegrar yfirlýsingar 1.008 þingmanna frá 25 löndum. Þingmennirnir fjórir koma úr bæði stjórn og stjórnarandstöðu, en þeir segja áætlunina brjóta alþjóðalög.
Um er að ræða þær Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þingmann Vinstri-grænna og varaformann utanríkismáladeildar, Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, Silju Dögg Gunnarsdóttur, þingmann Framsóknarflokks og Smára McCarthy, þingmann Pírata og formann þingmannanefndar EFTA og EES.
Í yfirlýsingunni lýsa þingmennirnir yfir áhyggjum sínum af áhrifum áætlunar nýrrar ríkisstjórnar Ísraels á deilur og átök Ísraela og Palestínumanna. Segir í yfirlýsingu þeirra að áætlunin brjóti alþjóðalög og gangi gegn alþjóðlegum samþykktum og ályktunum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um málefni Palestínu og Ísraels. Þá gangi hún þvert á markmið um svonefnda tveggja ríkja lausn á deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs og setji „fullkomið bakslag í alla möguleika á friðarviðræðum“.
„Framkvæmd áætlunar ríkisstjórnar Ísraels mun skapa mikla spennu á svæðinu, enda myndi hún skilja íbúa Palestínu eftir án vonar um fullmótað fullveldi og lífvænlegt ríki. Samkomulag ríkisstjórnar Ísraelsríkis kveður á um að byggingar nýrra landnemabyggða geti hafist strax á næstu dögum og vikum,“ segir í yfirlýsingunni en þingmennirnir segja yfirgnæfandi líkur á að það muni endanlega gera út um horfur um frið milli Ísraela og Palestínumanna með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
„Ísland á sérstakt samband við Palestínu. Við vorum fyrsta vestræna ríkið sem viðurkenndi sjálfstæði og fullveldi Palestínu með samhljóða samþykkt Alþingis árið 2011 og erum aðilar að fríverslunarsamningi við Palestínu í gegnum EFTA. Við höfum einnig söguleg tengsl við Ísraelsríki frá stofnun þess árið 1948,“ segir í yfirlýsingunni.
Hvetja undirrituð því utanríkisráðherra og ríkisstjórn Íslands til að beita sér með ákveðnum og skýrum hætti fyrir friðsamlegri lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna og að koma því skýrt á framfæri við ísraelsk stjórnvöld að áform þeirra gagnvart Palestínu séu óviðunandi.
„Ísland hefur alltaf stutt tveggja ríkja lausnina og ber ávallt að tala fyrir því að alþjóðalög séu virt og að diplómatískum og friðsamlegum leiðum sé beitt í deilum Ísraela og Palestínumanna. Það er söguleg nauðsyn nú sem aldrei fyrr.“