Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar

Meginefni fundarins er reynsla af skimun ferðamanna til Íslands undanfarið …
Meginefni fundarins er reynsla af skimun ferðamanna til Íslands undanfarið og næstu skref. mbl.is/Kristinn Magnússon

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum við  Tjarnargötu klukkan 16 í dag.

Ásamt forsætisráherra verða þar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir til svara, auk þess sem Alma D. Möller landlæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, verða á fundinum.

Meginefni fundarins er reynsla af skimun ferðamanna til Íslands undanfarið og næstu skref.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert