Minningarathöfn fer nú fram á Þingvöllum til minningar um Bjarna Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, konu hans Sigríði Björnsdóttur og fjögurra ára dótturson þeirra, Benedikt Vilmundarson, sem létust í eldsvoða á Þingvöllum fyrir hálfri öld. Athygli vakti að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra studdist við hækjur þegar hún mætti til athafnarinnar.
Að sögn Bergþóru Benediktsdóttur, aðstoðarkonu Katrínar, er um sprungu í beini að ræða.
Morgunblaðið fjallaði ítarlega um harmleikinn á Þingvöllum í morgun. Blaðið fékk aðgang að öllum gögnum rannsóknarinnar sem gerð var á orsökum eldsvoðans. Þau eru varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands. Atburðirnir á Þingvöllum þessa örlagaríku nótt hafa ekki áður verið raktir á grundvelli þessara heimilda, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.