Samkeppniseftirlitið tók í dag bráðabirgðaákvörðun í máli sem snýst um að Penninn ehf. hafi tekið bækur Uglu útgáfu ehf. úr sölu í verslunum sínum. Þeim fyrirmælum hefur verið beint til Pennans að taka bækur Uglu aftur í sölu og hafa þær aðgengilegar í sölukerfum og á vefsíðu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Þar segir að stofnunin telji „sennilegt að með því að senda til baka m.a. söluhæstu bækur Uglu í maí sl. og í framhaldi synja um viðskipti við útgáfuna hafi Penninn misnotað markaðsráðandi stöðu sína á smásölumarkaði fyrir bækur.“
Í bráðabirgðaákvörðuninni er einnig mælt fyrir um að ákvarðanir Pennans um að synja bókaútgefendum um viðskipti skuli byggja á málefnalegum forsendum sem skráðar séu í verklagsreglum og aðgengilegar viðkomandi bókaútgefendum og Samkeppniseftirlitinu.
„Penninn hefur lengi verið langstærsti aðili í bóksölu hér á landi. Á það sérstaklega við á þeim árstíma sem er utan við hina árstíðabundnu jólabókasölu á nóvember og desember þegar bækur eru einnig boðnar á stórmörkuðum. Hefur það grundvallarþýðingu fyrir bókaútgefendur að bækur þeirra séu seldar í verslunum Pennans allt árið um kring,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.
Eftirlitið telur að umrædd synjun Pennans á sölu bókanna hafi ekki stuðst við málefnalegar forsendur og telur stofnunin einnig að það hafi verið nægilega leitt í ljós að útgáfa Uglu á bókum í hljóðbókarformi hafi verið veigamikil ástæða þeirrar ákvörðunar Pennans að neita að selja bækur Uglu.
„Að mati Samkeppniseftirlitsins getur þessi háttsemi Pennans m.a. fælt íslensk bókaforlög frá því að leita nýjunga við sölu á bókum sínum. Sölusynjun af þessu tagi getur því haft alvarlegar afleiðingar fyrir bókaútgefendur, rithöfunda og neytendur, jafnvel þótt bækur Uglu séu teknar aftur til sölu að hluta eða öllu leyti. Mikilvægt er því að bregðast við umræddri synjun strax, enda er undirbúningur að útgáfu bóka fyrir næstu jól framundan,“ segir einnig í tilkynningunni.