Lokun Gróttu framlengd

Aðdráttarafl Gróttu er mikið.
Aðdráttarafl Gróttu er mikið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umhverfisstofnun hefur gert úttekt á fuglavarpi á svæðinu og hefur ákveðið að framlengja lokun friðlandsins Gróttu í Seltjarnarnesbæ fyrir umferð gesta frá 20. júlí til 31. júlí 2020.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Umrætt svæði er skilgreint sem friðland skv. auglýsingu nr. 13/1984. Samkvæmt auglýsingunni er umferð óviðkomandi fólks bönnuð á tímabilinu 1. maí til 15. júlí.

Umhverfisstofnun telur mikilvægt að framlengja lokunina, þar sem hætta er á verulegri röskun á fuglalífi ef svæðið verður opnað á þeim tíma sem tilgreindur er í auglýsingunni, enda um viðkvæmt tímabil fuglalífs að ræða. Svæðið nálægt Gróttu, sem og Grótta sjálf, er vinsælt útivistarsvæði og því mikilvægt að bregðast við sem fyrst, að mati Umhverfisstofnunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert