Einn einstaklingur hefur verið lagður inn á gjörgæsludeild í öndunarvél með COVID-19. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna.
Þórólfur sagði að um væri að ræða einstakling á fertugsaldri.
Nokkrir fleiri eru til skoðunar á Covid-göngudeildinni, sagði Þórólfur enn fremur.
Hann sagðist sjá merki um frekari veikindi, alvarleg veikindi, líkt og síðasta vetur. Ekki væru sjáanleg merki um að veiran væri veikari en áður.