Sex kórónuveirusmit greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær en ekkert hjá Íslenskri erfðagreiningu. Fjögur smit greindust við landamærin en beðið er eftir mótefnamælingu hjá öllum.
Alls eru 120 í einangrun, einn á sjúkrahúsi og einn á gjörgæslu.
Þetta kemur fram á covid.is.
Talsvert fækkar í sóttkví á milli daga en nú eru 720 í sóttkví.
695 sýni voru tekin hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, 27 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 2.488 við landamærin.