„Það hefði kannski verið heppilegra að passa vel upp á tveggja metra regluna. Við verðum að vera umburðarlynd og ég tel að hún hafi ekki verið að brjóta lögin,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir þegar hann var spurður á upplýsingafundi almannavarna hvort hann teldi að ferðamálaráðherra hefði brotið reglur um tveggja metra reglu og sóttvarnir um helgina.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra fór út að borða með vinkonum sínum og í búðir á Laugaveginum á laugardag án þess að tveggja metra reglunni væri fylgt. Á facebooksíðu sinni sagði Þórdís Kolbrún að eftir á að hyggja hefði verið einfaldara að fara ekki með vinkonum sínum.
Þórólfur sagði að fólk verði að bera ábyrgð á sínum athöfnun og tveggja metra reglan eigi aðallega við um umgengni einstaklinga sem fólk þekki engin deili á.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði að almennt stæðum við öll frammi fyrir sömu áskorunum. Þeir sem standi í framlínunni þurfi að vera fyrirmyndir og þurfi að vera tilbúnir að taka gagnrýni.
„Við þurfum að gæta okkar öll í þessu saman og þurfum að vera tilbúin að taka gagnrýni.“ sagði Víðir meðal annars.