Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, og Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19-faraldursins hér á landi ásamt Rögnvaldi Ólafssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni.