Fimm ný innanlandssmit

Frá skimun við gamla Orkuhúsið þar sem skimun fer fram.
Frá skimun við gamla Orkuhúsið þar sem skimun fer fram. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimm ný inn­an­lands­smit kór­ónu­veiru greind­ust á sam­eig­in­legri deild sýkla- og veiru­fræðideild­ar Land­spít­al­ans og Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar í gær. Þrjú smit greind­ust við landa­mær­in, tvö smit­anna eru virk en mót­efna­mæl­ing­ar er beðið í þriðja til­vik­inu. 

Þetta kem­ur fram á covid.is. All­ir þeir sem greind­ust inn­an­lands voru í sótt­kví. 

Alls eru 111 í ein­angr­un en eng­inn er á sjúkra­húsi. 1.020 eru í sótt­kví. Því hef­ur þeim sem eru í sótt­kví og ein­angr­un fækkað aðeins á milli daga en 113 voru í ein­angr­un þegar töl­ur um það voru birt­ar í gær og 1.072 í sótt­kví.

491 sýni var tek­ið á sam­eig­in­legri deild sýkla- og veiru­fræðideild­ar Land­spít­al­ans og Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, 172 í ann­arri skimun hjá Íslenskri erfðagrein­ingu og 1.283 við landa­mær­in.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert