Klukkan á Íslandi verður óbreytt eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórnvöldum.
„Niðurstaða ríkisstjórnarinnar er að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma á Íslandi hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukkustund. Vegur þar þyngst að neikvæð áhrif fækkunar birtustunda á vökutíma og skerðingar birtustunda í lok dags sem dregið gætu úr útivist og hreyfingu eru ekki nægilega vel þekkt, en birtustundum hefði fækkað um 13% á ársgrundvelli með breytingunni.
Ríkisstjórnin telur að mikilvægt sé að leita leiða til að bregðast við áhrifum sem misræmi staðartíma og líkamsklukku getur haft í för með sér og ákvað að fela heilbrigðisráðherra að ráðast í fræðsluátak um mikilvægi svefns og gera kannanir á svefntíma landsmanna fyrir og eftir átakið í samstarfi við embætti landlæknis. Enn fremur var mennta- og menningarmálaráðherra falið að taka saman þau verkefni þar sem upphafi skóladags hefur verið frestað, leggja mat á þau og ráðast í frekari tilraunaverkefni þar sem fylgst verði með svefntíma barna og unglinga fyrir og eftir breytingu til að mæla árangur.
Málið hefur verið til umfjöllunar í Stjórnarráðinu í rúm tvö ár og meðal annars lagt fyrir almenning í samráðsgátt stjórnvalda en þátttaka varð umtalsverð. Þá funduðu fulltrúar forsætisráðuneytisins með fjölda umsagnaraðila og sérfræðinga,“ segir í tilkynningu.
Alls bárust tæplega 1.600 ábendingar í samráðsgátt stjórnvalda um breytingar á klukkunni og leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar.
Forsætisráðherra ákvað í janúar að setja málið í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Í greinargerðinni voru settir fram eftirfarandi þrír valkostir og var almenningi boðið að leggja fram sín sjónarmið í samráðsgátt stjórnvalda: