Elías Þórsson lenti í því leiðindaatviki í dag að ökumaður stórrar pallbifreiðar ók á hann þar sem hann stóð á miðri göngugötu. Ökumaðurinn veittist að Elíasi þegar ökumanninum var tjáð að hann keyrði í leyfisleysi á göngugötu.
Atvikið átti sér stað á Laugavegi í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í dag, nánar tiltekið á þeim hluta Laugavegar sem skilgreindur er sem göngugata. Elías segir ökumanninn hafa keyrt á sig í þrígang áður en hann steig út úr bílnum og reif í Elías og fleygði honum til.
„Ég er að labba heim til mín af Kaffibrennslunni sem er steinsnar frá húsinu mínu þegar, fyrirvaralaust, þessi ökumaður kemur og ýtir í mig með bíl sínum,“ segir Elías við mbl.is. „Ég sný mér við og spyr hann hvað hann sé eiginlega að gera, hann sé hérna á bíl sínum á miðri göngugötu, og á móti umferð í þokkabót. Þá ýtir hann svona aftur í mig með bílnum þannig að ég ýtist eftir götunni svona kannski tvo metra.
Þá stígur hann út úr bílnum, rífur í mig og fleygir mér til. Ég tjáði manninum bara þá að ég ætlaði að hringja á lögregluna, sem ég og gerði.“
Lögregla kom á svæðið og tók af mönnunum skýrslu. Elías segir að á meðan það gerðist hafi annar bíll komið og keyrt niður göngugötuna í leyfisleysi. Var lögregla þá á staðnum og aðhafðist ekkert. Elíasi var síðan boðið að kæra málið en sagðist ekki nenna að standa í því.
Elías segist orðinn langþreyttur á ágangi bíla á göngugötunni á Laugavegi, sem ekki hafi leyfi til að vera þar. Hann sé alls ekki sá eini sem lendi í atvikum sem þessum. Í facebookhópi Samtaka um bíllausan lífsstíl má sjá fleiri frásagnir fólks sem hafa lent í svipuðum aðstæðum.
„Ef Reykjavíkurborg ætlar að hafa þessa göngugötu þarna, af hverju er þá ekki hægt að gera það almennilega? Hérna keyra í gegn tugir ef ekki hundruð bíla á dag og það bara stemmir ekki við þann fjölda bíla sem raunverulega má keyra hérna,“ segir Elías.
Einungis er leyfilegt fyrir ökumenn sem hafa svokallað P-merki að keyra á göngugötum og þá sem sinna vöruflutningum fyrir verslanir við göngugötuna. Það er þó aðeins á tilskildum tíma dags.