Ekki var unnt að framfylgja frávísun egypskrar fjölskyldu frá landinu sem fara átti fram í morgun. Fólkið var ekki á fyrirframákveðnum stað þar stoðdeild hugðist fylgja því úr landi. Ekki er vitað um dvalarstað fólksins samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra.
Málið er áfram á borði stoðdeildar ríkislögreglustjóra. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu að því er segir í tilkynningu frá embættinu.
Magnús D. Norðdahl, lögmaður Kehdr-fjölskyldunnar, sagði í samtali við mbl.is rétt fyrir klukkan tíu að hann hefði ekki náð í fjölskylduna í dag og slökkt hefði verið á símum þeirra. Hann hefði búist við því að fjölskyldan yrði sótt klukkan 5:30 og henni vísað úr landi.
„Það er slökkt á símunum þeirra og ég er í myrkrinu eins og aðrir með það,“ sagði Magnús.
Til stóð að fjölskyldan flygi með flugvél Icelandair til Amsterdam í morgun og fór sú flugvél af landi brott klukkan 7:31 án fjölskyldunnar.