19 ný innanlandssmit: mesti fjöldi frá 9. apríl

Frá sýnatöku vegna kórónuveirunnar.
Frá sýnatöku vegna kórónuveirunnar. Landspítali/Þorkell Þorkelsson

19 ný smit kór­ónu­veiru greind­ust inn­an­lands í gær, en tal­an er þó óstaðfest. Þetta seg­ir Thor Asp­e­lund, pró­fess­or í líf­töl­fræði og ábyrgðarmaður spálík­ans Há­skóla Íslands um þróun kór­ónu­veiruf­ar­ald­urs­ins hér á landi, í sam­tali við mbl.is. Hann greindi fyrst frá þessu í morg­unút­varp­inu á Rás 2. 

Þótt töl­urn­ar séu óstaðfest­ar hljóta þær að vera mjög nærri lagi, að sögn Thors sem seg­ir aðspurður að þró­un­in komi sér á óvart. „Það er eitt­hvað í gangi.“ 

Um er að ræða mesta fjölda greindra inn­lendra smita síðan 9. apríl. Þann dag greind­ust 27 smit.

Á þriðju­dag greind­ust 13 ný inn­an­lands­smit.

Fyr­ir ein­ung­is viku var spálík­an Há­skóla Íslands upp­fært og gerði það ráð fyr­ir einu til fjór­um smit­um á dag næstu vik­ur en allt að átta smit gætu þó greinst á ein­um degi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert