„Í ljósi þeirra alvarlegu atburða sem upp komu á síðasta borgarstjórnarfundi 15. september sl. og varða ummæli Dóru Bjartar Guðjónsdóttur borgarfulltrúa og formanns mannréttinda- og lýðræðisráðs í garð oddvita Sjálfstæðisflokksins, Eyþórs Laxdal Arnalds, förum við fram á aukafund í forsætisnefnd eigi síðar en í upphafi næstu viku.“
Þetta kemur fram í skeyti sem Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, og Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins, sendu Pawel Bartozek, forseta borgarstjórnar á sjöunda tímanum í kvöld.
Dóra Björt sagði meðal annars að Eyþór „virðist hafa fengið fleiri hundruð milljóna að gjöf frá Samherja í gegnum fyrirtæki sem hefur verið notað sem mútufélag“. Sagðist hún ítrekað hafa spurt um ástæður þess án þess að fá svör.
Hún sagði líka að komið hafi í ljós að Samherji standi að baki uppbyggingu í miðbænum á Selfossi, sem Eyþór hafi um árabil verið dyggur talsmaður fyrir. „Hér gæti verið komin ein ástæða þess að Samherji gaf Eyþóri Arnalds borgarfulltrúa svo drjúga gjöf sem stór hluti í Morgunblaðinu er,“ sagði hún.
Bætti hún við að ekki séu allir á því að skynsamlegt sé að afhenda hagsmunaaðilum skipulagsvaldið, hvorki á Selfossi né í Örfirisey þar sem Eyþór virðist hafa hagsmuni af uppbyggingu.
Eyþór svaraði Dóru og sagði hana vera „dylgja algjörlega út í loftið“ og sagði hana verða sjálfri sér til minnkunar. Þannig væri auðvelt að nálgast upplýsingar um að skipulag miðbæjar Selfoss hefði verið samþykkt í íbúakosningu fjórum árum eftir að hann hætti í borgarstjórn og að byggingarleyfin fyrir miðbæinn hafi verið gefin af vinstri-meirihlutanum. Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki komið þar nærri.
Hann sagði þetta samsæriskenningu sem stæðist ekki og betra væri að eyða tíma borgarfulltrúa í eitthvað annað en „þessa þráhyggju“.