Gufa upp úr öðrum opna sigkatlinum í Bárðarbunguöskjunni hefur ekki áður sést jafn greinilega og þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir í vikunni.
Ljóst er að hiti er undir en Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir að ekki sé hægt að fullyrða að aukin virkni sé í eldstöðinni.
Bárðarbunga er ein af megineldstöðvunum í Vatnajökli og eitt virkasta svæði landsins. Jarðvísindamenn hafa fylgst sérstaklega með henni, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.