Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill taka fram að hún sektar ekki ökumenn bifreiða sem eru komnar á nagladekk þrátt fyrir að slík dekk séu almennt leyfð frá 1. nóvember til 15. apríl. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar í gær.
„Veturinn hefur þegar gert vart við sig víða á landinu – meðal annars á höfuðborgarsvæðinu og viðbúið að frost og hálka eigi eftir að gera ökumönnum áfram lífið leitt. Lögreglan hefur fengið mikið af fyrirspurnum um nagladekk frá ökumönnum á starfssvæði LRH sem og þeim sem eru koma til eða frá höfuðborgarsvæðinu, og því er það undirstrikað að ökumenn bifreiða, sem eru búnar nagladekkjum, eiga ekki sekt yfir höfði sér.“