Alls eru 27 sjúklingar nú inniliggjandi á Landspítalanum vegna Covid-19. Þeir hafa alls verið 61 frá upphafi þriðju bylgju faraldursins. Þar af eru fjórir á gjörgæslu og tveir í öndunarvél.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar segir enn fremur, að nú séu 1.222 sjúklingar í eftirliti Covid-19-göngudeildar. Þá eru 52 starfsmenn í sóttkví A og 20 starfsmenn eru í einangrun.