Límmiðar frá nýnasistahreyfingunni Norðurvígi á biðstöð strætó hafa vakið nokkurn óhug og hvetur Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, farþega til þess að kroppa límmiðana í burtu, verði þeir varir við þá.
Á límmiðunum stendur „Ísland þarf sterkt afl“ og fylgir merki hreyfingarinnar með. Guðmundur Jörundsson vakti athygli á skilaboðunum á Twitter.
Vá hvað þetta er sjúkt og ógeðslegt pic.twitter.com/GaGuZzD2Mb
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) October 18, 2020
„Við höfum verið að sjá svona öðru hvoru. Þessi tiltekna hreyfing hefur stundum verið að líma límmiða á skýlin og meira að segja á Gaypride-vagninn. Við auðvitað fordæmum svona skilaboð og reynum eftir bestu getu að rífa þetta af jafnóðum,“ segir Guðmundur í samtali við mbl.
Vinnur nú Strætó að því að staðsetja skýlið í fyrrgreindri færslu og sjá til þess að skilaboðin verði fjarlægð.
Gæta þarf varúðar þegar límmiðar af þessu tagi eru teknir burt þar sem rakvélarblöð hafa verið fest aftan á þá í einhverjum tilvikum að sögn Guðmundar.
Uppfært 17.06:
Skilaboðin hafa verið fjarlægð.