Hópur sem berst fyrir lögfestingu „nýju stjórnarskrárinnar“ tók sig til og letraði skilaboð í þágu þess á vegg við hegningarhúsið: „Nýju stjórnarskrána strax!“ Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélagsins, deildi mynd af áletruninni á Facebook og lét eftirfarandi fylgja:
„Sé ekki betur en að nýr veggur sé að rísa við hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Við eigum nýja stjórnarskrá. Klárum málið – skrifum undir!
Sé ekki betur en að nýr veggur sè að rísa við hegningarhúsið á Skólavörðustíg 🙂 Við eigum nýja stjórnarskrá. Klárum málið - skrifum undir! www.nystjornarskra.is
Posted by Katrín Oddsdóttir on Sunday, 18 October 2020