Viðskipta- og efnahagsmál voru aðalumræðuefnið á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag.
Guðlaugur Þór lýsti yfir ánægju með formlegt efnahagssamráð ríkjanna sem sett var á laggirnar eftir fund ráðherranna í fyrra. „Bein og milliliðalaus samskipti við helstu ráðamenn í okkar mikilvægasta viðskiptalandi eru ómetanleg enda höfum við náð markverðum áföngum undanfarin misseri,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningu.
„Reglubundið efnahagssamráð hefur verið fest í sessi og Íslandsfrumvarpið er nú í umfjöllun Bandaríkjaþings. Fundur okkar Pompeo í dag staðfesti enn frekar góð tengsl ríkjanna og að væntingar um að þau geti aukist enn frekar séu á rökum reistar,“ bætir hann við.
Guðlaugur Þór og Mike Pompeo hittust fyrst í Washington í janúar í fyrra og svo aftur í Reykjavík rúmum mánuði síðar. Á þeim fundi var ákveðið að setja efnahagssamráð ríkjanna á fót og var fyrsti fundur þess haldinn í Reykjavík snemmsumars 2019. Í síðustu viku fór efnahagssamráðið fram í annað sinn og var á þeim fundi undirritað sameiginlegt minnisblað um áframhaldandi samvinnu á ýmsum sviðum á þessum vettvangi og að festa samráðið í sessi þannig að það verði eftirleiðis haldið árlega, segir í tilkynningunni.
Bandaríkjaþing hefur nú til umfjöllunar frumvarp um sérstakar vegabréfsáritanir fyrir íslenskt viðskiptafólk, svonefndar E1 og E2-áritanir. Ákvörðun um að þingið fjallaði um málið, Íslandsfrumvarpið eins og það hefur verið kallað, lá fyrir í lok síðasta árs eftir árangursríka málafylgju íslenskra stjórnvalda þar að lútandi. Má í því sambandi nefna heimsókn utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra til Washington í fyrra þar sem hann átti fundi með fjölmörgum þingmönnum beggja deilda þingsins.