Geti vel sinnt almannaþjónustu

Höfuðstöðvar Vodafone Sýn.
Höfuðstöðvar Vodafone Sýn. mbl.is/Hari

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar hf., sem rekur m.a. Stöð 2, Vísi og Bylgjuna, segir félagið vel geta tekið að sér almannaþjónustuhlutverk sem RÚV er einu falið í lögum í dag.

Í umsögn Sýnar til fjárlaganefndar segir að fjölmiðlar félagsins séu vel í stakk búnir til að veita almannaþjónustu og ríkið gæti gert samning um það við fyrirtækið hliðstæðan þeim sem gerður hefur verið við TV2 í Noregi.

,,Við erum með vinsælasta vef landsins um þessar mundir, Vísi, við erum með stóra fréttastofu, við rekum sjö útvarpsstöðvar og erum við með níu sjónvarpsstöðvar þannig að það er ekkert vandamál fyrir okkur að ná til allra. Við rekum líka eina landsdekkandi dreifikerfi sjónvarps og útvarps. Við getum því séð um þetta,“ segir hann.

,,Ríkið þarf að skilgreina hvað almannaþjónusta er. Að halda úti auglýsingamiðli er ekki almannaþjónusta, að kaupa sápur og sýna í sjónvarpi er ekki almannaþjónusta og að vera með vinsælar íþróttaútsendingar er ekki almannaþjónusta. Það er nóg af fyrirtækjum sem sjá um þetta og gera það á eigin kostnað en ekki á kostnað skattborgara,“ segir Heiðar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert