Jarðskjálfti 3,3 að stærð mældist 2,1 kílómetra norður af Hellisheiðarvirkjun rétt rúmlega sjö í kvöld. Skjálftinn fannst vel í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu.
Í kjölfar skjálftans fylgdi annar, 2,7 að stærð.
Alls hefur á fjórða tug skjálfta mælst á svæðinu frá því klukkan 18:30 en hrinan hófst með skjálfta af stærð 2,8.