Frumvarp um lög á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar var samþykkt á Alþingi rétt í þessu. Lögin taka gildi þegar í stað.
42 þingmenn samþykktu frumvarpið, sex greiddu atkvæði á móti því og fimm greiddu ekki atkvæði.
Þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði með frumvarpinu, sama má segja um alla þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar, Flokks fólksins og Miðflokksins. Þingmenn Pírata og þingmenn utan flokka greiddu atkvæði gegn lögunum og þingmenn Samfylkingarinnar sátu hjá.
Málið gekk til Allsherjar- og menntamálanefndar og skilaði meirihluti nefndarinnar áliti sínu um 8 leytið. Meirihluti nefndarinnar mæltust til þess að frumvarp dómsmálaráðherra um kjaramál flugvirkja Landhelgsgæslu Íslands yrði samþykkt óbreytt.
Undir álitið rituðu: Páll Magnússon, Birgir Ármannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson. Guðmundur Ingi Kristinsson, áheyrnarfulltrúi í nefnd er samþykkur nefndaráliti meirihluta.
Guðmundur Andri Thorsson skilaði minnihlutaáliti. Hann taldi ekki fullreynt að samningar gætu náðst.
Þingmenn Pírata greiddu atkvæði gegn lögunum og sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, að þingmenn flokksins ætluðu sér ekki að taka þátt í „þessari aðför“. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata sagði að sannarlega væri „svartur föstudagur í dag“.
Þingmenn Samfylkingarinnar greiddu ekki atkvæði með frumvarpinu. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður flokksins, sagði það á ábyrgð samningsaðila að ná samningum en stjórnvöld hefðu ekki staðið undir þeirri ábyrgð. Staðan væri í boði ríkisstjórnarinnar.
Þingmenn Viðreisnar greiddu atkvæði með frumvarpinu og sagði Hanna Katrín Friðriksson þingmaður flokksins að það væri vegna þeirra aðstæðna sem væru uppi. Ábyrgðin á aðstæðunum væri þó á herðum ríkisstjórnarinnar.
Þingmenn Framsóknarflokksins greiddu, atkvæði með frumvarpinu. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði augljóst að lengra hafi ekki verið hægt að komast í samningsviðræðum eins og stendur. Öryggi landsmanna væri ógnað vegna verkfallsins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á fjórða tímanum í dag. Tekist var á um málið á þingi í dag.