Frumvarp umhverfis- og auðlindaráðherra um Miðhálendisþjóðgarð var afgreitt af þingflokkum í ríkisstjórn í dag. Því verður útbýtt á Alþingi í dag, síðasta dag svo unnt sé að taka málið fyrir þingfrestun án afbrigða. Líneik Anna Sævarsdóttir þingmaður Framsóknar segir að málið verði flókið í afgreiðslu í þinginu.
Gerð var tilraun til þess að koma frumvarpinu í gegnum þingflokkana á síðasta þingi en það tókst ekki. Kveðið er á um stofnun Miðhálendisþjóðagarðs í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þá hafa áform um stofnun Miðhálendisþjóðgarðs verið harðlega gagnrýnd af sveitarstjórnarfólki sem og bændum.
Rammaáætlun þriðji áfangi var einnig afgreiddur úr þingflokkum samhliða.
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknar og nefndarmaður í umhverfis- og samgöngunefnd, segir í samtali við mbl.is að einhugur hafi verið um afgreiðslu frumvarpsins innan þingflokks Framsóknarflokksins þó að einstaka efnistök hafi staðið í sumum. Þá segir hún að það séu ýmsir fyrirvarar gerðir við málið.
Hún segist sjá fram á að frumvarpið verði flókið í vinnslu á þinginu.
Þá segir Líneik Anna að frumvarpið hafi tekið breytingum frá því að það var síðast lagt fyrir þingflokka og einnig frá því að það var í samráðsgátt. Í þessari útgáfu fari sveitarfélög með svæðisskipulag sem og að fyrirkomulag á ákvörðun um verndarflokka mismunandi svæða hafi breyst.
Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mjög mikla vinnu óunna. Hann bætir við að málið hafi þroskast mikið enda ekki nýtt af nálinni og að skref hafi verið tekin áfram, þó séu nokkur skref eftir.
Vilhjálmur stendur við fyrirvara sem hann gerði við máið þegar hann var í starfshópi sem skilaði skýrslu sem var til grundvallar frumvarpinu.
Fyrirvarar hans snúa að stærðarmörkum, orkunýtingu, flutningskerfi raforku og sátt um starfsemina.
„Það er algjör grunnforsenda að þetta sé unnið í sátt við sveitarfélögin,“ segir Vilhjálmur.
Sérðu fram á að þetta verði hitamál á þinginu?
Já mjög mikið hitamál.