Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mótmæli gegn sóttvarnareglum sem voru haldin á Austurvelli um helgina. Af myndum að dæma komu þar saman fleiri en 10 manns en nú eru í gildi tíu manna samkomutakmörk. Að sögn Ásgeirs Þórs yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fylgdist lögreglan með mótmælunum en skarst ekki í leikinn. Hann man ekki til þess að sótt hafi verið um leyfi fyrir mótmælunum.
Það virðist vera nokkuð augljóst að þarna hafi þær sóttvarnareglur sem eru í gildi núna verið brotnar?
„Við erum bara að rannsaka þetta mál. Það er það eina sem ég get sagt um þetta mál akkúrat núna,“ segir Ásgeir og bætir við:
„Þeir fá það svigrúm sem þeir þurfa til að leggja mat á það sem átti sér stað þarna og rannsaka það sem þarna átti sér stað.“
Spurður hvort lögreglan hafi haft eftirlit með mótmælunum eins og gjarnan er tilfellið segir Ásgeir:
„Við fylgdumst með þeim. Við erum auðvitað bæði með myndavélar niðri á Austurvelli og síðan voru lögreglumenn sem gáfu þessu gaum.“
En þið skárust ekki í leikinn?
„Nei.“
Aðspurður segir Ásgeir að lögreglan finni ekki fyrir því að almenningur sé farinn að slaka á hvað varðar sóttvarnir.
„Ég held að flestir séu að reyna að leggja sig fram eins mikið og þeir geta svo það verði einhver von á því að það verði hægt að slaka á reglum í næstu reglugerð. Ég held að það séu langflestir og yfirgnæfandi meirihluti sem er að vinna í þá átt.“