Samkvæmt nýrri lífskjaravísitölu (HDI) Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna er Noregur í efsta sæti. Listinn er birtur á hverju ári og er lagt mat á lífsgæði í 189 löndum. Ísland er nú í fjórða sæti.
Noregur fær einkunnina 0,957 en Ísland 0,949 líkt og Hong Kong en Ísland deilir fjórða sætinu með Hong Kong.
Skýrsla Þróunaráætlunar SÞ hefur verið gefin út árlega frá árinu 1990 og þar er lagt mat á fjölda hagstærða og annarra þátta, sem hafa áhrif á lífsgæði í löndunum.
Sviss er í öðru æti ásamt Írlandi og Þýskaland er í sjötta sæti. Svíþjóð er í sjöunda sæti og deila Holland og Ástralía áttunda sæti. Danmörk er í því 10 og aftast meðal Norðurlandanna er Finnland sem er í því ellefta.
Nýtt í lífskjaraskýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna er að einnig er birt röðun ríkja er HDI vísitalan er leiðrétt fyrir umhverfisáhrifum ríkjanna (PHDI). Við það breytist listinn mikið og fellur til að mynda Noregur úr fyrsta sæti í 16. sæti og Ísland hrynur niður 26 sæti úr fjórða í 30.
Mörg ríki falla þó nokkuð meira niður listann og fellur Singapúr niður 92 sæti vegna umhverfisáhrifa, Ástralía 72 sæti, Lúxemborg 131 sæti og Bandaríkin 45 sæti svo dæmi séu tekin.
Í efsta sæti í þessarar útgáfu listans trónir Írland og færist Sviss í annað sætið. Þá stekkur Bretland upp um tíu sæti í það þriðja, Danmörk fer upp um fimm í fimmta sæti, Svíþjóð upp um eitt í sjötta og Þýskaland niður um eitt í sjöunda. (Fjórða stendur autt).
Hástökkvari listans þegar umhverfisáhrifin eru metin er Kosta Ríka sem hækkar um 37 sæti og endar í því 25. og hækkar Moldóva næst mest, um 36 sæti í það 54. úr 90. sæti. Þá hækkar Srí Lanka um 33 sæti og endar í 38. og Hvítarússland um 33 sæti og endar í því tuttugasta.