Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður hefur gengið til liðs við Samfylkinguna, en hún hafði sagt sig úr Vinstri grænum í september og verið óháður þingmaður síðustu mánuði, en Rósa var kjörin á þing fyrir Vinstri græna í síðustu kosningum.
Í tilkynningu frá Rósu kemur fram að pólitískar áherslur hennar og Samfylkingarinnar séu nátengdar, þar á meðal með áherslu á „aukinn jöfnuð í samfélaginu þar sem allir geta notið sín á eigin forsendum, burtséð frá stétt eða stöðu en líka á frið og sjálfbærni og opið, framsækið og fjölbreytt samfélag með áherslu á virka fjölþætta utanríkisstefnu“.
Segir hún að aukin áhersla Samfylkingarinnar á loftslagsmál og umhverfismál og áætlun um græna viðspyrnu út úr Covid-19-kreppunni hafi gert útslagið við að taka þessa ákvörðun.