Sóttvarnareglur brotnar

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvær tilkynningar bárust til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um brot á sóttvarnareglum á veitingastöðum í gærkvöldi. Staðirnir eru báðir í miðborginni. Lögregla kom á fyrri staðinn á ellefta tímanum og ritaði skýrslu. Enginn var á hinum veitingastaðnum þegar lögregla kom þangað á tólfta tímanum í gærkvöldi. 

Líkt og ítrekað hefur komið fram er veitingastöðum gert að loka klukkan 22 og aðeins 15 mega vera í hverju sóttvarnahólfi. Ekki má hleypa inn gestum eftir klukkan 21 en þó er heimilt að selja mat út úr húsi til klukkan 23. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert