„Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem einhver er ósáttur við reglunar. En þegar svoleiðis kemur upp þá á fólk að sækja um undanþágu hjá heilbrigðisráðuneytinu, sem síðan tekur afstöðu,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarnadeildar.
Fyrr í dag var greint frá því að of margir hefðu verið saman komnir við messuhöld í Landakotskirkju á öðrum tímanum í dag, langt yfir samkomutakmörkunum. Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem lögregla hefur afskipti af messuhaldi í Landakotskirkju. Á jóladag var greint frá því að hátt í 130 manns hafi verið við messu á aðfangadagskvöld í Landakotskirkju.
Aðspurður segist Rögnvaldur ekki vilja tjá sig sérstaklega um umrætt atvik. Það sé þó alltaf leiðinlegt þegar fólk reynir að komast hjá þeim takmörkunum sem nú eru í gildi. „Maður er bara leiður þegar það gerist að fólk fer fram hjá reglunum,“ segir Rögnvaldur og bætir við að allir verði að standa saman.
„Það er heimsfaraldur í gangi og það er alveg vitað af hverju við erum að gera þetta. Ég ætla samt ekki að skammast út í þennan einstaka hóp. Það er bara alltaf leiðinlegt þegar fólk spilar ekki með.“